Hawk Infinity kaupir meiri hluta í Reglu

Norska fjárfestingafélagið Hawk Infinity fjárfestir í Reglu og verður aðaleigandi félagsins. Regla var stofnað árið 2008 af hjónunum Kjartani Ólafssyni og Önnu Guðmundsdóttur.  Regla hefur á undanförnum árið vaxið jafnt og þétt og er með sterka stöðu á sviði hugbúnaðarlausna fyrir bókhald lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Hjá Reglu vinna 25 starfsmenn og er  Regla með  almennar lausnir fyrir fyrirtæki óháð atvinnugreinum og mörkuðum.  Kjartan verður áfram framkvæmdastjóri og stjórnarformaður félagsins. 

Hawk Infinity AS er norskt fjárfestingarfélag sem fjárfestir í sterkum hugbúnaðar fyrirtækjum og eru með sterkan heimamarkað. Markmið Hawk  er að fjárfesta í félögum til lengri tíma og að félög í eigu Hawk  verði hluti af sterku safni félaga í eigu Hawk Infinity.

Centra fyrirtækjaráðgjöf var ráðgjafi Hawk Infinity og Arev verðbréfafyrirtæki var ráðgjafi seljanda.

Skildu eftir athugasemd

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Skrunaðu efst