Mat á hæfi viðskiptavina
Reglur Arev verðbréfafyrirtækis hf. um mat á hæfi viðskiptavinar og tilhlýðileika fjármálaþjónustu
1. ALMENNT
Reglur þessar eru settar í samræmi lög nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga, með síðari breytingum. Reglurnar gilda um mat á hæfi viðskiptavina og tilhlýðileika fjármálaþjónustu við veitingu fjárfestingarþjónustu og fjárfestingarstarfsemi á vegum Arev verðbréfafyrirtækis hf. (hér eftir Arev eða félagsins).
Félagið veitir ekki sjálfstæða fjárfestingarþjónustu án ráðgjafar þar sem tilhlýðileikamat samkvæmt 2. mgr. 45. gr. laga nr. 115/2021 kemur til álita. Þá nýtir félagið í starfsemi sinni ekki undanþágu frá tilhlýðileikamati samkvæmt 5. mgr. 45. gr. laga nr. 115/2021.
Verklagsreglur þessar koma til skoðunar þegar viðskiptavinur er flokkaður í samræmi við verklagsreglur um flokkun viðskiptavina sem almennur fjárfestir, fagfjárfestir eða viðurkenndur gagnaðili.
2. UMFANG ÞJÓNUSTU FÉLAGSINS
Arev veitir fjárfestingarráðgjöf og eignastýringarþjónustu sem falla undir 44. gr. laga nr. 115/2021.
Arev veitir ekki þjónustu án ráðgjafar (e. non-advised / execution-only service) og nýtir ekki undanþágu 5. mgr. 45. gr. laga nr. 115/2021.
Félagið tekur því ekki við sjálfstæðum fyrirmælum almennra fjárfesta með það fyrirkomulag að viðskiptavinurinn taki fjárfestingarákvörðun án ráðgjafar félagsins og félagið framkvæmi síðan viðskiptin á grundvelli slíkrar þjónustu.
Verði þjónustuframboði félagsins breytt þannig að Arev hyggist veita þjónustu sem fellur undir 45. gr. laga nr. 115/2021 skal endurskoða reglur þessar og setja viðeigandi verkferla áður en slík þjónusta hefst.
3. MAT Á HÆFI
3.1. Skylda til að framkvæma mat á hæfi
Með mati á hæfi (e. suitability test) er átt við þá skyldu sem lögð er á fjármálafyrirtæki í 44. gr. laga þegar veitt er fjárfestingaráðgjöf eða þjónusta sem felst í eignastýringu. Þar er sú skylda lögð á fjármálafyrirtæki að afla sér upplýsinga um þekkingu og reynslu viðskiptavinar á sviði viðkomandi tegundar verðbréfaviðskipta, fjárhagsstöðu hans og markmið með fyrirhugaðri fjárfestingu, þannig að því sé kleift að veita viðskiptavininum ráðleggingar um hvaða verðbréfaviðskipti hæfi honum. Sé þessara upplýsinga ekki aflað er fjármálafyrirtækinu óheimilt að láta viðskiptavinum í té ráðleggingar um fjárfestingarráðgjöf og eignastýringu. Skyldur Arev eru mismiklar eftir því hvort viðskiptavinur er viðurkenndur gagnaðili fagfjárfestir eða almennur fjárfestir. Vísað er til laga nr. 115/2021 vegna allra skilgreininga er fram koma í reglum þessum.
3.2. Viðmið við mat
Félagið skal afla þeirra upplýsinga frá viðskiptavinum eða hugsanlegum viðskiptavinum sem eru nauðsynlegar til þess að fyrirtækið skilji aðstæður viðskiptavinar og geti metið á upplýstan hátt hvort þau tilteknu viðskipti sem mæla á með í eignastýringarþjónustu uppfylli eftirfarandi viðmiðanir, með því að taka tilhlýðilegt tillit til eðlis og umfangs veittrar þjónustu:
- a) þau uppfylli fjárfestingarmarkmið hlutaðeigandi viðskiptavinar,
- b) þau séu þannig að viðskiptavinurinn sé fjárhagslega fær um að bera alla tengda fjárfestingaráhættu sem felst í fjárfestingamarkmiðum hans,
- c) þau séu þannig að viðskiptavinurinn hafi þá reynslu og þekkingu sem nauðsynleg er til að skilja áhættuna sem felst í viðskiptunum eða í stýringu eignasafns hans.
Við matið skal taka tillit til eðlis og umfangs veittrar þjónustu og eðlis þeirra fjármálagerninga sem ráðlagt er um eða fjárfest er í.
Þegar félagið veitir fagfjárfesti fjárfestingarþjónustu að því er varðar vörur, viðskipti og þjónustu sem flokkun viðskiptavinarins miðast við, má félagið gera ráð fyrir að viðskiptavinurinn sé með nægilega reynslu og þekkingu í skilningi c-liðar og sé fjárhagslega fær um að bera alla tengda fjárfestingaráhættu sem er í samræmi við fjárfestingamarkmið hans, í skilningi b-liðar.
Í því skyni að félagið fái fullnægjandi upplýsingar um fjárhagsstöðu viðskiptavinar og þekkingu hans á verðbréfaviðskiptum, skulu viðskiptavinir eða hugsanlegir viðskiptavinir veita þær upplýsingar sem tilteknar eru í viðauka I (lögaðilar) eða viðauka II (einstaklingar). Upplýsingarnar skulu, eftir því sem við á, ná til fjárfestingarmarkmiða, fjárhagsstöðu, áhættuþols, þekkingar og reynslu.
3.3. Þekking og reynsla
Við mat á þekkingu og reynslu skal félagið meðal annars taka mið af:
- a. tegundum fjármálagerninga sem viðskiptavinur þekkir;
- b. eðli, umfang og tíðni fyrri viðskipta;
- c. tímabili sem fyrri viðskipti ná yfir;
- d. menntun viðskiptavinar;
- e. núverandi og viðeigandi fyrri starfsreynslu.
Sjálfsmat viðskiptavinar skal ekki eitt og sér ráða niðurstöðu matsins þegar aðrar upplýsingar liggja fyrir sem benda til annars.
Félagið skal tryggja að upplýsingar um þekkingu og reynslu séu nægilega nákvæmar til að unnt sé að meta hæfi viðskiptavinar með fullnægjandi hætti.
3.4. Uppfærsla og áreiðanleiki upplýsinga
Arev skal gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að upplýsingar sem liggja til grundvallar hæfismati séu réttar, nægjanlegar og uppfærðar.
Ef upplýsingar eru óljósar, úreltar eða ófullnægjandi skal afla frekari upplýsinga áður en hæfismati er lokið eða ráðlegging er veitt.
Viðskiptavinur skal upplýsa félagið um verulegar breytingar á fjárhagsstöðu, fjárfestingarmarkmiðum, þekkingu eða reynslu sem kunna að hafa áhrif á niðurstöðu matsins.
Félagið skal endurmeta upplýsingar þegar breytingar á aðstæðum viðskiptavinar eða eðli þjónustunnar gefa tilefni til.
3.5. Hæfi fjármálagerninga og fjárfestingarstefnu
Við ákvörðun um hvort tiltekin fjárfesting hæfi viðskiptavini skal Arev taka mið af eiginleikum, áhættu og flækjustigi viðkomandi fjármálagernings.
Við fjárfestingarráðgjöf skal Arev jafnframt taka mið af því hvort ráðleggingin samræmist fjárfestingarmarkmiðum, áhættuþoli og tapgetu viðskiptavinar.
3.6. Viðvaranir
Ef ekki liggja fyrir nægilegar upplýsingar til að framkvæma mat á hæfi skal félagið ekki veita þá þjónustu sem krefst slíks mats.
Ef niðurstaða hæfismats er sú að fyrirhuguð fjárfesting eða þjónusta samræmist ekki aðstæðum viðskiptavinar skal félagið ekki veita ráðleggingu um slíka fjárfestingu eða framkvæma hana innan eignastýringar nema og að því marki sem lög heimila.
Ákvæði þessara reglna um sérstakar viðvaranir vegna neikvæðrar niðurstöðu tilhlýðileikamats samkvæmt 3. og 4. mgr. 45. gr. laga nr. 115/2021 eiga ekki við um núverandi starfsemi félagsins, þar sem félagið veitir ekki þjónustu án ráðgjafar. Sama á við um viðvaranir sem eingöngu tengjast nýtingu undanþágu samkvæmt 5. mgr. 45. gr. laga nr. 115/2021.
3.7. Frávik
Ef starfsmaður verður var við að hæfismat hafi ekki farið fram, að upplýsingar séu ófullnægjandi eða að ráðlegging samræmist ekki niðurstöðu hæfismats skal hann þegar í stað stöðva viðkomandi ferli að því marki sem nauðsynlegt er og tilkynna frávikið til næsta yfirmanns og/eða regluvarðar.
Félaginu er óheimilt við eignastýringu að mæla með fjárfestingaþjónustu eða fjármálagerningum við viðskiptavin eða hugsanlegan viðskiptavin hafi það ekki aflað framangreindra upplýsinga.
Gildistaka
Reglur þessar öðlast gildi að fengu samþykki stjórnar félagsins. Reglur þessar koma í stað eldri reglna frá árinu 2025.
Samþykkt af stjórn Arev verðbréfafyrirtækis hf. hinn 12. ágúst 2026.
