Ferðamannaspá Arev ágúst 2019

Mánaðarlegt ársmeðaltal fjölda ferðamanna er nú um 2,2 m manns. Spáin gerir ráð fyrir að meðaltalið fari í 2,0 milljón manns áður en að ferðamönnum tekur að fjölga á nýjan leik.

Hægri ás myndarinnar hér til hliðar sýnir, að fram á mitt ár 2017, hélt mánaðarlegt ármeðaltal áfram að aukast hlutfallslega. Á árinu 2017 hóf þetta að snúast við og er staðan nú þannig að mánaðarlega ársmeðaltalið hefur verið að lækka um 17-20%. Í júní og júlí 2019 nam lækkunin 17%. Mánaðarlegt ársmeðaltal er nú um 2,2 m. Ekki er ólíklegt að ársmeðaltalið verði komið í 2,1 m. í lok ársins. WOW tók að draga verulega úr framboði sínu í september 2018 og má því búast við að frá og með september 2019 dragi verulega úr hlutfallslegri lækkun meðaltalsins.

Myndin hér til hliðar sýnir þetta betur. Að mati Arev mun 12 mánaða meðaltal lækka fram að áramótum en byrja svo að hækka á nýjan leik. Meðtalið mun falla í 2,0 milljón manns í árslok og heildarfjöldi ferðamanna á árinu 2019 verður um eða yfir 2,0 milljón manns. Arev setti svo upp tvær aðrar sviðsmyndir. Skv. bjartsýnu sviðsmyndinni (grænu línunni) mun 12 mánaða meðalferðamannafjöldinn á árinu 2019 falla í rúmlega 2,1 m. og byrja að vaxa á nýjan leik. Skv. svartsýnu sviðsmyndinni (gula línunni) mun 12 mánaða meðalferðamannafjöldinn falla í rúmlega 1,9 milljónir manna áður en hann byrjar að vaxa á nýjan leik

Scroll to Top