Arev verðbréfafyrirtæki var ráðgjafi minnihlutaeigenda við sölu Reglu til Finago. Finnska hugbúnaðarfyrirtækið hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Reglu, sem býður skýjalausnir fyrir bókhald, launavinnslu og reikningagerð. Gert er ráð fyrir að viðskiptin gangi í gegn í nóvember 2026.
Seljendur eru norska fjárfestingasamstæðan Hawk Infinity og minnihlutaeigendur Reglu. Hawk Infinity eignaðist 82,5% hlut í Reglu árið 2024 og var Arev þá einnig ráðgjafi eigenda félagsins (sjá fyrri frétt um sölu Reglu til Hawk Infinity og tilkynningu Hawk Infinity Software í Kauphöllinni í Osló).
Regla: íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki í örum vexti
Regla var stofnuð árið 2008 og er með höfuðstöðvar í Reykjavík. Félagið þjónar einkum litlum fyrirtækjum og bókhaldsstofum, og lausnir þess ná yfir fjárhagsbókhald, reikningagerð, launavinnslu, innkaup og sölukerfi.
Rekstur Reglu hefur verið traustur. Tekjur námu 634 milljónum króna árið 2025, sem er 25+% vöxtur milli ára, og hagnaður nam 154 milljónum króna. Salan er því meðal athyglisverðari viðskipta með íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki á árinu.
Kaup Finago á Reglu: fyrsta skrefið inn á íslenskan markað
Finago er eitt stærsta hugbúnaðarfyrirtæki Norðurlanda á sviði fjármála-, mannauðs- og rekstrarlausna. Með kaupum Finago á Reglu stígur félagið sín fyrstu skref á Íslandi. Regla verður áfram rekin undir núverandi stjórnendum og fær aðgang að reynslu Finago af samstarfi við bókhaldsstofur um öll Norðurlönd.
Arev ráðgjafi minnihlutaeigenda
„Regla er gott dæmi um íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem hefur byggt upp sterka stöðu og vakið áhuga öflugra norrænna kaupenda. Það var ánægjulegt að gæta hagsmuna minnihlutaeigenda í gegnum ferlið,“ segir Jón Scheving Thorsteinsson, framkvæmdastjóri Arev.
Arev verðbréfafyrirtæki hf. veitir ráðgjöf við kaup og sölu fyrirtækja, samruna og yfirtökur, verðmat og fjármögnun. Félagið starfar með leyfi frá Seðlabanka Íslands.
Nánar er fjallað um kaupin í frétt Viðskiptablaðsins og á ensku hjá ArcticToday.

