Tengdir aðilar og krókaaflakerfið

Í nýjasta tölublaði Vísbendingar (20. tbl. 2026 https://visbending.is/greinar/krokaaflakerfi/) fjalla Árni Sv. Mathiesen, Kalman Christer og Særós
Eva Óskarsdóttir um hvaða áhrif breytt skilgreining á tengdum aðilum hefði á útreikning hámarksaflahlutdeildar.

Um hámarksaflahlutdeild fiskiskipa með krókaaflamark gilda lagareglur þess efnis að hlutdeild megi ekki nema meira en 5% af heildarverðmæti krókaaflahlutdeildar. Á síðustu árum hafa verið lögð fram frumvörp þar sem gerð er breyting á skilgreiningu á tengdum aðilum.

Í greininni er skoðað hvaða áhrif slík breyting hefði á úthlutanir síðustu ára, miðað við útgerðaraðila sem eru nálægt 5% . Niðurstöðurnar sýna að nokkrir aðilar færu yfir hámarkið, og í tveimur tilfellum er um veruleg stökk að ræða:

  • JV/Salting samstæðan færi í rúmlega 9% hlutdeild, langt yfir 5% hámarkinu.
  • Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði færi úr 4,9% í 7,5%. Hlutdeild nokkurra samstæða hækkar töluvert þegar reiknað er með aðferð frumvarpsins. Þrír
    stærstu aðilarnir í krókaaflakerfinu þyrftu að minnka aðkomu ef tillögurnar yrðu lögfestar – með sölu á kvóta eða félögum.

Scroll to Top