Arev heldur námskeiðið Valréttir og Black-Scholes miðvikudaginn 16. desember 2026. Prófnefnd verðbréfaréttinda hefur staðfest það sem 6 klst. almenna endurmenntun.
Námskeiðið er ætlað handhöfum verðbréfaréttinda og öðrum sem starfa á fjármálamarkaði. Byrjað er á grunnatriðum valrétta og endað á Black-Scholes-líkaninu. Líkanið gerbreytti afleiðumarkaði eftir að það kom fram árið 1973 og fyrir það hlutu Robert C. Merton og Myron Scholes Nóbelsverðlaunin í hagfræði 1997. Fischer Black, sem þróaði líkanið með Scholes, lést árið 1995 og gat því ekki hlotið verðlaunin.
Farið verður yfir:
- Grunnatriði: kaupréttir og söluréttir, samningsgengi, kaupverð valréttar, ávinningur af valréttinum og hvenær valréttur er í gróða, á sléttu eða í tapi.
- Valréttakörfur og jafnvirði: bolaspönn, bjarnarspönn, kragi, fiðrildi og söðull, auk þess hvernig valréttir eru notaðir til að verja hlutabréfastöðu. Einnig jafnvirði kaup- og söluréttar.
- Verðlagning: tvíkostatré, eftirlíking og áhættulaus verðlagning.
- Black-Scholes í framkvæmd: úr tré yfir á samfelldan tímaás, formúlan og reiknað flökt.
- Grikkirnir: delta, gamma, þeta, vega og hró.
- Önnur afbrigði: amerískir og bermúda valréttir, valréttir á hlutabréf sem greiða arð og aðrir sérhæfðir valréttir.
Kennt er með reikningsæfingum þar sem þátttakendur reikna sjálfir.
Aðalleiðbeinandi er Jón Sch. Thorsteinsson, framkvæmdastjóri Arev og stærðfræðingur að mennt.
Viltu hita upp? Myndbandið The Trillion Dollar Equation frá Veritasium segir á líflegan hátt frá því hvernig jafna úr eðlisfræði varð að hornsteini afleiðumarkaðarins.
Hagnýtar upplýsingar
- Tími: miðvikudagur 16. desember 2026, kl. 9:00–16:00
- Staður: á netinu, í Microsoft Teams
- Endurmenntun: 6 klst. almenn endurmenntun, staðfest af prófnefnd verðbréfaréttinda
- Verð: 70.000 kr.
- Skráning: sendið póst á arev@arev.is með „black_scholes“ í efnislínu fyrir föstudaginn 4. desember 2026. Takið fram nafn, kennitölu, vinnustað og greiðanda.
Námskeiðið verður haldið ef þátttakendur verða fleiri en 10.

