Verðbólga sl. 12 mánaða er 7,9%

I. Samantekt

Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 7,9% undanfarna tólf mánuði skv. mælingum og mati Veritabus. Óvissa við mælinguna er 0,3 prósent sem er tilkomin vegna ónákvæmni við mælingar undirliða. Hækkunin er drifin áfram af hækkunum á leigu og reiknaðri húsaleigu, matvöru og eldsneyti. Hækkun á matvöru milli mánaða er einkum tilkomin vegna 5% hækkunar á mjólkurvörum hjá framleiðanda í byrjun apríl1 .

II. Undirliðir vísitölu

Veritabus spáir eftirfarandi breytingum á undirliðum vísitölunnar á milli mánaða og næstliðna 12 mánuði:

Vegin meðalhækkun vísitölunnar er að mati Veritabus 7,9 prósent og óvissan 0,3 prósent eins og áður segir. Matvara hefur hækkað svipað og vísitala neysluverðs, m.a. vegna mikillar hækkunar á innlendum búvörum. Húsnæði og eldsneyti hafa hækkað mun meira en flestir aðrir liðir minna, m.a. vegna sterkrar stöðu íslensku krónunnar. Þrátt fyrir þetta hefur ýmis neysluvarningur, svo sem áfengi, föt og skór, húsgögn og heimilisbúnaður, veitingahús og fleira hækkað töluvert að undanförnu.

MS hækkaði mjólkurvörur og osta um 5% 4. apríl. Mjólk, ostar og smjör eru tæplega 20% af matarkörfunni. Þess utan eru mjólkurvörur mikilvægt hráefni í ýmsa matvöru. Til viðbótar eru tollar á ýmsum staðkvæmdarvörum sem tengjast mjólkurvörum.

III. Um Veritabus

Veritabus er systurfélag Arev verðbréfafyrirtækis. Allar verðkannanir Veritabus auk annarra opinberra verðkannana er að finna á vef Veritabus fyrir áskrifendur.

Veritabus notar eigin verðkannanir og opinber gögn við mat á verðbólgu.

Scroll to Top