Verðbólgubaninn Gummi í Bónus

Við eigum Gumma í Bónus mikið að þakka. Hann gegndi starfi framkvæmdastjóra í 25 ár og skildi eftir sig fyrirtæki í fremstu röð.

Útreikningar Arev sýna áhugaverða þróun eftir brottför hans í ársbyrjun 2024: vöruframlegð Bónus virðist hefur hækkað umtalsvert — um tvær prósentur.

Athygli vekur að EBITDA hlutfall Haga (verslun og vöruhús) hefur ekki fylgt sömu þróun. Þrátt fyrir aukna vöruframlegð virðist það haldist nokkuð stöðugt — sem gefur til kynna að aðrir kostnaðarliðir hafi tekið slakann(*)

Útreikningar Arev benda til þess að Guðmundur hafi náð mun betri árangri í baráttunni við hækkun matvöruverd­bólgu en þær opinberu stofnanir sem hafa það verkefni.

(*) Rétt er að fram komi að hvorki vöruframlegð Bónus eða ebitda framlegð verslana og vöruhúsa eru opinber gögn. Arev byggir útreikninga sína á reiknilíkani sem hefur verið í notkun frá 2020

Scroll to Top