Viljayfirlýsing Arev og Hafrannsóknastofnunar

Bakgrunnur

Myndin sýnir skekkju sem fall af ítrunum í dæmigerðum trjáalgóriþma

Frá árinu 2018 hefur Arev hannað gervigreindarlíkön sem notuð eru til að meta hreyfingar á hlutabréfamörkuðum. Arev hefur beitt sams konar aðferðum í samvinnu við Hafrannsóknastofnun við að meta stofnstærðir í gullkarfa og djúpkarfa eins og sjá má hér. Gögn úr stofnmælingarleiðöngrum Hafrannsóknastofnunar hafa verið nýtt til að þróa gervigreindarlíkön (e. machine learning).

Arev & Hafrannsóknastofnun hafa nú undirritað viljayfirlýsingu um áframhaldandi samstarf varðandi rannsóknir og þróun á stofnmati. Í þeirri yfirlýsingu felst það að Hafrannsóknastofnun hefur aðgang að þeim líkönum sem Arev smíðar, og Arev fær gögn til að nýta við smíði þessara líkana. Greina- og skýrsluskrif munu vera eftir nánara samkomulagi og mun vísindaleg vinnubrögð höfð í heiðri. Einn starfsmaður Hafrannsóknastofnunar munu koma að hverri útgáfu.

Markmið með samstarfinu

Markmiðið með þessu samstarfi er að sameina krafta okkar, þar sem erfitt reynist að smíða nákvæm líkön án góðra gagna. Þar kemur Hafrannsóknastofnun inn. Það sem Arev býður þeim á móti er ákveðin sérhæfing í gervigreindarlíkönum sem mikið púður hefur verið lagt í undanfarin ár. Við teljum því að þetta samstarf muni efla vitneskju og nákvæmni um hvernig megi nota gervigreind til að vinna úr stofnmælingum. Einnig getur þetta samstarf opnað á tengd verkefni til framtíðar sem getur aukið upplýsingaflæði varðandi stofnstærðir ýmissa tegunda hafsins

Vísindamenn Hafrannsóknarstofnunar eru í fremstu röð og það skiptir öllu máli við þjálfun gervigreindarlíkana að hafa aðgang að þekkingu þeirra.

Scroll to Top