Verðbólga fer undir 9% í fyrsta sinn í heilt ár að mati Veritabus

  • Samantekt

Veritabus telur að ársbreyting vísitölu neysluverðs lækki úr 9,5% í 8,5%. Óvissan er 0,2%. Hagstofan birtir mælingar sínar 30. júní næstkomandi.

  • Helstu undirliðir vísitölu

Mat Veritabus byggist aðallega á eftirfarandi mati:

LiðirBreyting á milli mánaðaBreyting á einu ári
Matur og drykkjarvörur-0.4%11.0%
Áfengi og tóbak0.6%8.6%
Föt og skór0.8%5.4%
Húsnæði, hiti og rafmagn0.8%10.9%
Húsgögn, heimilisbúnaður o.fl.0.6%8.3%
Ferðir og flutningar1.5%7.1%
Póstur og sími-0.6%-1.6%
Vísitala neysluverðs0.6%8.5%

Matvara og húsnæði hafa hækkað meira en flestir aðrir liðir sl. 12 mánuði, en matvaran lækkar þó um 0,4% í júní frá fyrri mánuði. Húsnæðismarkaðurinn heldur áfram að róast, en hækkar samt lítillega áfram m.a. vegna verðbólgu sem hefur áhrif á reiknaða húsaleigu, innflutta kostnaðarverðbólgu og launabreytingar.

Myndin sýnir þróun veigamikilla liða í vísitölunni undanfarna 12 mánuði:

Veigamestu liðirnir sem áttu mestan þátt í hækkun vísitölu neysluverðs eru áfram matar- og drykkjarvörur, ásamt húsnæði, hita og rafmagns liðnum. Breytingin á einu ári hljóðar upp á 11% í fyrri liðnum og 10,9% í þeim síðari.

Um Veritabus

Veritabus er systurfélag Arev verðbréfafyrirtækis. Veritabus notar eigin verðkannanir og opinber gögn við mat á verðbólgu.

Skildu eftir athugasemd

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Scroll to Top