Áhrif nýs frumvarps á mælingu á aflahlutdeild (aflamarki) í íslenskum sjávarútvegi.
Inngangur
AREV hefur framkvæmt ítarlega greiningu1 á áhrifum nýs frumvarps um stjórn fiskveiða á skiptingu á aflahlutdeild á Íslandi. Greiningin varpar ljósi á miklar breytingar sem yrðu á mælingu á samþjöppun kvóta ef frumvarpið nær fram að ganga. Frumvarpið hefur farið í gegnum fyrstu umræðu og er fyrir atvinnuveganefnd
Helstu niðurstöður
Greiningin sýnir verulegar breytingar á mælingu á dreifingu kvótaeignar:
- Markaðshlutdeild stærstu aðila eykst:
- Aflahlutdeild 3 stærstu fyrirtækja eykst um 3,9 prósentustig (úr 32,6% í 36,5%)
- Aflahlutdeild 5 stærstu fyrirtækja eykst um 7,9 prósentustig (úr 45,8% í 53,6%)
- Aflahlutdeild 10 stærstu fyrirtækja eykst um 11,2 prósentustig (úr 68,4% í 79,6%)
- Fyrirtæki með mestu aukninguna:
- Útgerðarfélag Reykjavíkur: +5,4 prósentustig
- Samherji: +3,6 prósentustig
- FISK-Seafood: +1,9 prósentustig
- Brim: +0,3 prósentustig
- Áhrif á samþjöppun:
- Herfindahl-Hirschman vísitalan (HHI) hækkar úr 555 í 732
- Þetta er 32% aukning á mælingu á samþjöppun
- Þrátt fyrir aukninguna er HHI gildið enn undir 1.000, sem telst vera mörk lítillar samþjöppunar samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum
Aðferðafræði
Greiningin byggir á samanburði á tveimur gagnasöfnum:
- Hlutdeild skv. lögum: Núverandi kvótaeignarhald samkvæmt gildandi lögum
- Hlutdeild skv. frumvarpi: Kvótaeignarhald eins og það yrði ef frumvarpið næði fram að ganga
Hlutdeildarreiknir Arev er notaður til að reikna markaðshlutdeild í báðum kerfum miðað við þær úthlutanir sem fram hafa farið á fiskveiðiárinu 24/25. Við notum Herfindahl-Hirschman Index (HHI) til að mæla markaðssamþjöppun, sem er alþjóðlega viðurkenndur mælikvarði sem notaður er af samkeppnisyfirvöldum víða um heim.
Samhengi
Alþjóðleg viðmið fyrir HHI eru:
- HHI undir 1.000: Lítil samþjöppun
- HHI 1.000-1.800: Miðlungs samþjöppun
- HHI yfir 1.800: Mikil samþjöppun
Þrátt fyrir að báðar tölur (fyrir og eftir frumvarp) séu undir 1.000 mörkum, þá verður 32% aukning á mælingu á samþjöppun miðað við boðarðar breytingar í nýju frumvarpi. Svo mikil aukning myndi almennt vekja athygli samkeppnisyfirvalda ef um væri að ræða samruna fyrirtækja.
Gagnvirk greining
Til að skilja betur áhrif frumvarpsins má skoða gagnvirka myndræningu okkar sem sýnir:
- Samanburð á 10 stærstu fyrirtækjunum
- Markaðssamþjöppun
- Aukningu með frumvarpi
- Markaðsuppbyggingu
- HHI greinin
Styðjið á hlekkinn til að skoða nánari greiningu
Ályktanir
Þó að hlutdeild skv. frumvarpi yrði enn undir því sem telst mikil samþjöppun, þá er aukning hennar umtalsverð. Þetta vekur upp spurningar um langtímaáhrif á markaðinn og hvort frekari samþjöppun gæti átt sér stað á komandi árum.
Þessi greining Arev er framlag til upplýstrar umræðu um stjórnun fiskveiða á Íslandi og áhrif breytinga á úthlutun og eignarhaldi aflaheimilda á samkeppnisumhverfi greinarinnar.
- Í þessari greiningu er ekki er tekið tillit til áhrifa breytinga vegna skyldleika (einn legg til hliðar) og yfirráða (skilgreining samkeppnislaga). Sú greining kemur síðar) ↩︎