Ættartengsl & yfirráð: áhrif þeirra á mælingu á kvótastöðu útgerða í nýju frumvarpi

AREV hefur greint áhrif fyrirhugaðs frumvarps um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu á Íslandi. Frumvarpið myndi hafa umtalsverð áhrif á mælingu kvótaeignar útgerðarfélaga. Ættartengsl og skilgreining yfirráða geta skipt miku máli.

Helstu niðurstöður

Greining okkar sýnir að jafnvel í grunntilviki nýs frumvarps myndi eignarhald kvóta verða umtalsvert samþjappaðra:

  • Hlutdeild Útgerðarfélags Reykjavíkur myndi aukast um 153%, eða úr 3,5% í 8,9%
  • Samherji myndi auka hlutdeild sína um 42%, eða úr 8,6% í 12,2%
  • FISK-Seafood myndi auka hlutdeild sína um 30%, eða úr 6,3% í 8,2%

Ættartengsl og tengdir aðilar

  • Útgerðarfélag Reykjavíkur gæti skv. frumvarpinu stjórnað allt að 25,6% af heildarkvóta með tengdum aðilum
  • Ættartengsl myndu leiða til stigvaxandi samþjöppunar frá grunntilfelli í þremur skrefum:
    1. Fyrsta stig (systkini): Kvótahlutfall ÚR færi í 17,7%
    2. Annað stig (G.Run, fyrsti leggur til hliðar): Kvótahlutfall ÚR færi í 18,7%
    3. Þriðja stig (G.Run+Ísfélag, fyrsti leggur til hliðar): Kvótahlutfall ÚR færi í 25,6%

Yfirráð – skilgreining samkeppnislaga

Frumvarpið felur einnig í sér ákvæði um yfirráð sem gætu haft veruleg áhrif:

  • Samherji gæti skv. frumvarpinu stýrt 20,4% af kvóta með tengdum aðilum
  • FISK-Seafood gæti skv. frumvarpinu stýrt 14,0% af kvóta með Vinnslustöðinni

Heildarsamþjöppun

Niðurstöður greiningarinnar sýna að frumvarpið myndi leiða til umtalsverðrar samþjöppunar á eignarhaldi kvóta:

  • 3 stærstu fyrirtækin myndu fara úr 32,6% hlutdeild í allt að 58,5% þegar mest lætur skv. frumvarpinu
  • 5 stærstu fyrirtækin myndu fara úr 45,8% hlutdeild í allt að 78,5% þegar mest lætur skv. frumvarpinu

Um AREV

AREV sérhæfir sig í greiningu á íslenskum sjávarútvegi og auðlindanýtingu. Við leggjum áherslu á hlutlausa umfjöllun sem byggir á úrvinnslu gagna til að stuðla að upplýstri umræðu um mikilvæg mál sem snerta þjóðarhagsmuni.

Hlekkur á gagnvirka greiningu á fiskveiðikvótum
Hafðu samband við sérfræðinga AREV

Síðast uppfært: 8. maí 2025

Scroll to Top